Glasgow - Scotland with Style
Home » SeeGlasgow » Languages » Icelandic

Icelandic

Burrell Collection
Velkomin til Greater Glasgow og Clyde dalsins, sem er einn líflegasti og mest spennandi áfangastaður í Evrópu.

Þar er mjög margt áhugavert að sjá, svo sem sumar fegurstu byggingar á Bretlandseyjum frá Viktoríutímanum, alþjóðlega viðurkennd þjóðminja- og myndlistarsöfn og hægt er að upplifa einstætt andrúmsloft. Njótið skemmtana í einni af menningarborgum Evrópu, en þar eru haldnar hátíðir og sérstakir viðburðið allt árið og hægt er að heimsækja einstaklega fallegar verslanir, fyrsta flokks bari og veitingastaði. Allt er þetta steinsnar frá bestu útivistarsvæðum og listigörðum landsins, en svæðið er jafnframt við hlið stórkostlegustu útsýnisstaða í Skotlandi.

Auk þessa eru samgöngur mjög góðar með flugvélum, járnbrautum og á vegum úti svo einfalt er að komast hingað til Skotlands í stutt frí eða lengri heimsókn. Á þessari heimasíðu er að finna mikið af aðgengilegum upplýsingum um Greater Glasgow og Clyde dalinn til að hjálpa þér til að hafa sem mest gagn af heimsókninni. Við hlökkum til að bjóða þig velkomin til að taka þátt í ógleymanlegu ævintýri, sem þú kemur til með að vilja endurtaka aftur og aftur og aftur.